Everts and friends

Everts and friends

Miðvikudaginn 21 Júlí var Everts and Friends keppnin haldin og var þetta fyrsta keppnina mín eftir heimsmeistarakeppnina í þýskalandi. Það var mjög gaman en það er búið að breyta brautinni í Genk, bæta við stökkpöllum og öldum. Það eru fjórir flokkar sem keppa, Future Stars (85cc), Golden Heroes, GP Stars og Laides.

Ég var 9. í tímatökunni sem var mjög gott. Í fyrsta motoinu voru bara við stelpurnar að keppa og ég endaði 9 í því motoi. Það var hellings barátta því að brautin er frekar stutt og hröð, þá eru svo jafnir hringtímar hjá öllum. Í öðru motoinu þá var Ladies chase en þá störtum við stelpurnar  næstum því 1 hring á undan og ökumönnum úr heimsmeistarakeppninni og Stefan Everts fær að vera með. GP gaurarnir reyna síðan að ná okkur. Ég náði ekki alveg jafn góðu starti núna en ég endaði  í 11 sæti af stelpunum og 25 sæti í heildina. Í síðasta motoinu þá keyrum við brautina í öfuga átt með strákunum en þeir starta bakvið okkur og þurfa líka að stoppa og skipta um afturdekk. Ég var í start krassi en náði að keyra mig upp og endaði í 21 sæti.

Ég skemmti mér mjög vel, það var gaman að vera þarna að horfa á alla hina.

Bryndís

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>