21.07.2010
Júlí byrjaði á því að ég tók mér smá pásu frá hjólinu í nokkra daga. Síðan fórum við að hjóla og það gekk ágætlega en svo datt ég þegar að ég var að hjóla í Genk og lenti á öxlinni. Ég gat ekki hreyft hana mikið og var með mikinn verk í henni. Við ákváðum að fara á sjúkrahúsið til þess að sjá hvað væri að og þá kom í ljós að það var sprunga í öxlinni. Læknarnir sögðu að hugsanlega gætu þetta verið einhverjar vikur í fatla og ég þyrfti að hvíla öxlina. Í endurkomutímanum viku seinna sagði læknirinn að það væri kannski sprunga í öxlinni og ég þyrfti að vera í fatla í 3 vikur í viðbót. Ég sagði honum að ég gæti hreyft öxlina og notað hana, þá bað hann mig um að fara varlega
Helgina 16 – 18 Júlí var okkur boðið á útihátíð í Hollandi Zwarte cross. Þetta er svona tónlistar útihátíð með motocrossi og furðubíla, hjóla, búninga keppni. Það var ótrúlega gaman, það var líka tívolí og fmx og allt. Það voru 150 þúsund mans þarna og það var mega stuð. Við skemmtum okkur ótrúlega vel þarna og vorum sátt með helgina. Á mánudeginum eftir það reyndi ég að hjóla aftur og það gekk mjög vel og núna er ég byrjuð að æfa aftur á fullu. Næsta keppnin mín í heimsmeistarakeppninni er í Tékklandi 8. ágúst.
Bryndís