Um síðustu helgi fór fram síðasta umferð íslandsmeistaramótsins og var keppnin haldin í Bolaöldu. Bolaalda leit mjög vel út á föstudeignum fyrir keppnina en það var búið að rippa hana og bleyta helling. Ég var skráð í bæði kvennaflokk og unglingaflokk því að ég var komin í ágætt hjólaform og var tilbúin í þetta. Á laugardagsmorgninum byrjaði ég á tímatöku með stelpunum hjólaði 4 hringi til að setja einn tíma og hætti svo því að maður þarf bara að keyra 3 hringi í tímatökunni. Ég var með hraðasta hringtímann í kvennaflokknum á 2:04. Ég hafði síðan tímatökuna hjá 85 flokknum í pásu og svo var tímatakan hjá unglingaflokknum á eftir henni, ég beið aðeins með að fara inn í brautina og tók aftur bara 4 hringi. Ég var með 4 tímann þar í tímatökunni sem var mjög gott þar sem að ég fór bara 1 alvöru hring.
Í fyrra motoinu með kvennaflokknum var ég önnur í startinu en fór strax framúr Karen og hjólaði bara ákveðið og vann það örugglega. Fyrsta moto með unglingunum var ég 5 í startinu og var á eftir Jökli fyrstu hringina en ég komst ekki framúr og reyndi og reyndi því að ég var með hraðari hringtíma. Svo gerði hann aðeins mistök þannig að ég komst auðveldlega framúr og jók bilið á milli okkar, ég var rosalega stressuð og hamaðist á kúplingunni. Ég endaði motoið í 4 sæti og var með jafna hring tíma og varð ekkert rosalega þreytt enda búin að vera æfa þolið núna undanfarið. Fékk síðan pásu meðan MX Open og B-flokkurinn keyrðu. Rétt fyrir kvennamotoið fékk ég svakalegan maga krampa svo að ég gat ekki staðið, keyrði motoið, drap á hjólinu 1 sinni en ég tapaði ekkert á því var fyrst allan tímann og ég hélt það út motoið. Ég vann semsagt kvennaflokkinn og var sátt með það. Ég hjólaði ekki alveg eins og ég get en ég náði þó að halda tímunum nokkurveginn stöðugum.
Seinna moto:ið í unglingaflokk var mjög gott en ég lenti í krassi í startinu og ég var lang síðust af stað með einni annarri súkku en hann hélt að við værum að fara að race-a og var fyrir mér fyrstu beygjurnar langaði mest að keyra á hann svo að hann myndi átta sig á því að ég væri hraðari en hann. Ég fór framúr honum og svo tók smá tíma að komast í tempó en ég náði flestum en sumir voru mjög tregir þegar að ég ætlaði að fara framúr þeim og voru bara fyrir en þeir mega það þar sem ég var ekki að hringa þá. Ég náði að keyra mig upp í 6 sæti og farin að nálgast baráttuna um 4 og 5 sæti þá gáfu þeir aðeins meira í en ég endaði motoið í 6 sæti stutt á eftir 5 sæti.
Ég varð 5 sæti overall eftir daginn og varð líka 5 sæti overall í íslandsmeistaramótinu í unglingaflokk og missti af einni keppni. Það var mjög gaman að taka þátt í báðum flokkunum og geri ég það örugglega aftur.
Bryndís
Þetta var flottur dagur
)