Fjórða umferð íslandsmótsins – Akureyri

Fjórða umferð íslandsmótsins – Akureyri

Ég fór norður á þriðjudeginum fyrir keppnina með Bigga og Ingva Birni til að æfa, þegar að við komum norður var brautin rosalega þurr og mikið af ryki í henni. Ég fann líka aðeins fyrir öxlunum á mér en þær urðu fljótt þreyttar, þetta er bara hjólaleysi og þarf ég að vinna í því að hjóla meira. Það rigndi svo alla aðfaranótt miðvikudagsins en það gerði ekki neitt fyrir brautina. Um morguninn var brautin vökvuð en þeir bleyttu hana rosalega mikið svo hún varð mjög sleip því vatnið sat ofan á þannig við biðum aðeins með það að hjóla í henni. Brautin var svo í superstandi á fimmtudeginum og hjólaði ég helling á 250 2T sem var geðveikt (Takk fyrir lánið Björk og Sverrir!).

Á laugardeginum var brautin fín en þeir settu svolítið mikið af trjákurli í hana sem var rosalega stórt þannig það var vont að hjóla á eftir einhverjum. Ég var með 6 tímann í tímatökunni en það skiptir litlu máli hvar þú stendur á línunni á Akureyri. Í fyrsta motoinu var ég með ágætt start um 5-7 sæti og var að berjast fyrstu hringina en ég vann þá baráttu og var á undan. Ég hjólið jafnt út motoið og var með stöðuga hringtíma. Ég fann ekkert til í öxlunum sem var frábært. Brautin var góð en það eru bara allar beygjurnar eins í henni, allar 180°. Í seinna motoinu var ég með miklu betra start, var 4 en hjólið virtist svo þungt í beygjunum en ég hélt áfram og var að byrja draga í burtu frá hópnum sem var á eftir mér þegar hjólið byrjaði að vera ótrúlega skrýtið í beygjunum það kokaði þegar að ég reyndi að gefa í. Ég reyndi að keyra eins hratt og ég gat til enda en ég var farin að þurfa skipta alveg niður í fyrsta gír svo að ég kæmist brautina. Missti nánast alla framúr mér enda var ég bara að dóla í kantinum. Ég endaði það moto í 10 sæti og setti það mig í 8 sæti eftir daginn.

Við vissum ekki alveg fyrst hvað hefði komið fyrir en svo þegar að pabbi fór að skoða þetta betur þá hafði nýja sían fyrir spíssinn stíflast og hjólið fékk því ekki allt eldsneytið sem að það átti að fá. Pabbi gat lagað það sem betur fer vegna þess að ég var að fara keppa á unglinga landsmótinu á Egilstöðum daginn eftir.

- Bryndís

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>