Um síðustu helgi var keyrð þriðja umferðina af sænska meistaramótinu í braut sem heitir Eliantorpsbanan sem er nálægt Finspång sem er um 200 km frá Stokkhólmi. Vikuna fyrir keppnina gistum við pabbi á flottu gistiheimili sem er í litlum bæ í suður Svíþjóð sem heitir Klåveröd. Gistiheimilið er nýtt og hafði verið opnað fyrr á þessu ári, manni leið nánast eins og heima hjá sér. Umhverfið er mjög fallegt og allt þar í kring og ég get vel mælt með að gista þarna.
Finspång er sandbraut sem er aðeins hörð undir og því myndast aðeins harðari bremsuholur en í venjulegri sandbraut og aðeins fleiri kantar. Brautin leit mjög vel út á föstudeginum slétt og hröð. Ég labbaði tvo hringi í brautinni og var mig farið að hlakka til að keyra í henni.
Á laugardagsmorgninum byrjaði æfingin á start æfingu sem gekk mjög vel og prufaði ég allskonar mismunandi línur, á æfingunni var brautin æði. Það voru hinsvegar engar línur þannig að brautin var frekar hröð og skemmtileg. Ég var í 3. sæti á æfingunni og í 4. sæti í tímatökunni aðeins nokkrum hundraðshlutum á eftir 3. sæti. Brautin var ennþá ótrúlega slétt þannig að það skildi ekki mikið á milli okkar. Í Qualifyingheatinu var ég með ömurlegt start, var í kringum 10. sæti, en náði að keyra mig upp um 3 sæti á fyrsta hring. Ég kláraði í 3. sæti en þar sem ég þurfti að vinna mig upp úr 10. sætinu var mikið um framúrakstur og stelpurnar í 1. og 2. sæti náðu þá góðu forskoti. Náði drauma framúrakstrinum, það kom step-up með lendingu og Marie fór ekki alla leiðina yfir þannig að ég stökk alla leið og keyrði mig bara inn í innri línuna og átti hana. Við keyrðum aðeins saman en ég átti innri línuna og ég get bókað að fólk sér þetta ekki í kvennaflokknum við framúrakstur. Hún datt ekki og sýndi það hversu vel þessi framúrakstur tókst og þetta var ekki blockpass. Ég var sátt með 3. sætið og var ekki mjög þreytt enda var brautin ennþá frekar slétt.
Á sunnudeginum byrjuðum við á æfingu og ég fór nokkra hringi og var með annan besta tímann sem hefði í raun átt að vera betri en ég gat ekki stokkið einn pall vegna þess að gula flaggið var á lofti. Var ánægð með það og var vel stemmd fyrir fyrsta motoið. Í startinu á 1. motoi var ég ekkert svo framarlega en náði að vinna mig upp strax á öðrum hring í 4. sæti. Ég var alveg í afturdekkinu á 3. sæti, tilbúin til að fara framúr og var búin að ákveða stað en þegar að við komum yfir einn hólinn inn í beygju var gult flagg. Stelpan í 2. sæti hafði dottið þannig að við fórum báðar í innri línuna framhjá henni. En þegar að stelpan á undan mér er komin framhjá henni þá sleppir þessi sem datt kúplingunni og gefur allt í botn og keyrir á mig, við festumst saman með hjólin og ég datt niður í 6. sæti við það en náði að keyra mig upp og enda í 4. sæti aðeins 2 sek á eftir 3. sæti. Ég var rosalega pirruð eftir motoið enda var ég ekki sátt með að vera keyrð niður.
Moto 2, ég þurfti bara að vera á undan stelpunni sem að var í 3. sæti í fyrsta motoi og til þess að ná pallinum. Ég náði góðu starti og var 4. á eftir Mariu sem var 5. í fyrra motoinu, ég var hraðari en hún og þegar að ég var búin að ákveða stað til að fara framúr en þá drap ég á hjólinu. Ég datt niður í 10.-11. sæti og missti þær 25 sek á undan mér þannig að ég þurfti að keyra mig upp. Það gekk mjög vel, ég var mjög afslöppuð og náði framúr flestum en stelpurnar sem að ég var að hringa voru svolítið mikið fyrir þannig að ég tapaði nokkrum sek og kláraði í 6. sæti. Ég var samanlagt í 5. sæti eftir helgina og var sæmilega sátt með það en ég hafði hraðann til þess að vera í 3. sæti en ég verð bara að ná því seinna.
Núna framundan er síðasta keppnin í íslenska meistaramótinu í Bolaöldu laugardaginn 20. ágúst.
Bryndís
Taka svo pallinn í næstu keppni!
Svo verður auðvitað pallur líka á Skáni í október. Ég mæti.