Ég flaug til Kaupmannahafnar á föstudagsmorguninn og tók lestina yfir til Malmö þar sem að pabbi kom og sótti mig. Við vorum komin á brautina seinni partinn en veðrið var rosalega gott. Við vorum í A-pittinum með Alexöndru og pabba hennar. Eftir skoðun þá labbaði ég brautina og hún leit vel út. Það er mikið af stórum pöllum í henni, langir beinir kaflar og brattar brekkur.
Á laugardeginum byrjuðum við á startæfingu sem var ágæt, hjólið var mjög gott, betra en það hafði verið í síðustu keppni. Magnus Motor Works skipti um stimpil og yfirfór mótorinn eftir síðustu keppni. Strax eftir startæfinguna byrjar æfingin og á fyrsta hring þá krassar ein á sérstökum palli sem er algjörlega blindur, það sem maður sér er bara hátt uppstökk. Annars er hægt að lýsa pallinum eins og stuttum table topp með lendingu í 40 – 50 metra droppi. Uppstökkið er frekar bratt svo maður fer rosalega hátt upp. Við keyrðum nokkra hringi í viðbót og það var engin stelpa búin að reyna stökkva hann en maður fékk óþægilegt kick á pallinum. Þá krassaði önnur stelpa þarna og það þurfti að sækja hana á sjúkrabörum og þá var æfingin okkar rauðflögguð. Við biðum í nokkuð langa stund eftir að geta farið aftur af stað en þeir þurftu að laga uppstökkið á pallinum og nokkra aðra staði. Þegar að við byrjuðum aftur fóru nokkrar stelpur að reyna stökkva pallinn og heppnaðist það mismunandi en það var engin sem að krassaði þarna. Í tímatökunni var ég búin að vera með 5 tímann í smá stund og var það mjög svipaður tími og stelpan á eftir mér. Hún náði svo að bæta sig þannig að ég fór út og stökk droppið en gaf aðeins of mikið í og stökk rosalega langt niður í brekkuna og segja sumir að ég hafi unnið keppnina hver stökk lengst þann daginn. Ég bætti mig um tæpar 2 sek með því að stökkva þetta og var ég mjög sátt með það. Í kvalheatinu var ég með lélegt start en keyrði mig upp strax á fyrsta hring og var miklu ákveðnari en þær sem að ég var að fara frammúr. Á þriðja hring ákvað ég svo að stökkva droppið aftur og þá fór ég að auka forskotið á þær sem voru á eftir mér og minka bilið í þær á undan. Ég var í 5 sæti en þá datt stelpan í 3 sæti í sandbeygjunni sem var rosalega sleip og erfið því maður kom úr langum beinum hörðum kafla fram hjá pittinum og beint inn í sandinn. Þá ég komin í 4 sæti og hélt áfram að taka á stelpuna á undan. Hún var aðeins of langt á undan mér meða við tímann sem var eftir til þess að ná henni þannig að ég endað í 4 sæti.
Sunnudagurinn var rosalegur en það var svo mikil þoka að það þyrfti að fresta keppninni um 2 tíma. Það er rosalega erfitt fyrir flaggarana að sjá ef að það var einhver sem að datt eða ef að það þarf sjúkrahjálp þá sjá þeir ekki sjúkraflaggið. Við fengum 15 mínútur í upphitum og var búið að slétta nánast alla brautina nema einhverjar 3 beygjur. Þetta var gaman og náði ég að hjóla aðeins betur en á laugardeginum.
1 moto: Ég náði ágætu starti og var í kringum 6 sæti og var í baráttu fyrsta hringina og fór frammúr tveimur stelpum strax á fyrsta hring og var komin upp í 4 sæti og var á eftir stelpunni í 3 sæti. Var að ná henni og fór frammúr henni í þriðju tilraun og var þá komin í 3 sæti og hélt því í um 2 hringi. Þá rann ég á hliðina í einni beygjunni en þegar ég var að standa upp þá keyrði fjórða sætið í bakið á mér svo ég kýldist niður aftur. Ég stóð upp og hélt áfram en mér var mjög illt í bakinu og reyndi eins og ég gat. Ég náði einni stelpu strax og var í innri línunni en hún skar yfir og klippti framdekkið hjá mér svo ég fór á hausinn. Ég stökk upp eins hratt og ég gat og kláraði motoið í 8. sæti en bakið var að fara með mig og ég gat hvorki setið né staðið síðustu hringina.
2 moto: Ég var með mjög mikla verki í bakinu en reyndi að hugsa ekki um það. Eftir að ég rúllaði skoðunarhringinn þá sá ég hvað brautin var holótt og ónýt og svo þetta leit ekki vel út fyrir motoið. Ég var með mjög gott start, var í 4 sæti og missti það aðeins seinna niður í 5 og svo 6 sæti en ég hélt áfram að reyna halda í þær fyrsta hringina því að ég vissi að ef að ég myndi gera það ætti ég séns á að engin önnur færi frammúr mér. Ég endaði motoið í 6 sæti og hjólaði ég mun betur í seinna motoinu í heildina en hvað ég gerði í fyrra motoinu. Ég endaði keppnina í 6 sæti samanlagt og var það nokkuð gott miðað við aðstæður en ég veit að ég var miklu betri en það. Hákon motocross.is var á keppninni og fylgdist með mér og gaf mér góð ráð.
Í gær hitti ég naprapat og fékk ráðleggingu um að taka því rólega en í dag reyni ég að fara hlaupa aðeins á ströndinni og svo bara svo taka því rólega. Næsta umferð er síðasta umferðin í sænskameistaramótinu en hún verður í Uddevalla um næstu helgi.
Bryndís
Myndir frá Hákoni hér motocross.is