Loka umferð sænska meistaramótsins

Loka umferð sænska meistaramótsins

Síðasta umferðin í Sænska meistaramótinu var haldin í Uddevalla, það er brautin sem að er notuð í heimsmeistarakeppninni sem er haldin í Svíþjóð. SVEMO hafði lagt saman USM (U = unglinga) og SM, USM byrjaði á föstudeginum en það voru bara A úrslit úr USM laugardag og sunnudag. B úrslit í USM voru keyrð á föstudeginum. Við komum á brautina um 2 leitið á föstudeginum en þá fór ég og horfði á USM strákana keyra. Brautin var sundurkeyrð en það hafði rignt svakalega alla vikuna þannig að það voru rosalega margar og djúpar línur. Við settum síðan upp pittinn okkar upp með pabba Alexöndru og gerðum allt tilbúið. Það var rosalega kalt og aðeins vindur en vindurinn hjálpaði aðeins til við að þurrka brautina. Ég hjólaði bara á miðvikudeginum fyrir keppnina því ég var ekkert sérstaklega góð í bakinu eftir keppnina í Tomelilla.

Æfingin og tímatakan á laugardeginum gekk ágætlega. Það tók smá stund að venjast brautinni og línunum í henni, því að maður missir aðeins flæðið í gegnum öldurnar en það eru 3 öldu kalfar í brautinni. Ég var með 2:13 á æfingunni og svo 2:08 í tímatökunni sem var 5 besti tíminn. Í qualifying raceinu átti ég mjög lélegt start en bjargaði því með því að taka innri línuna í fyrstu beygjunni og hélt vinstri kantinum alveg út beinakaflan og fram af droppinu niður í gilið og tók nokkur sæti á því.  Á fyrsta hringnum náði ég að keyra mig upp og var komin í 5 sæti þegar að ég fór yfir tímatökulínuna. Ég keyrði svo bara nokkuð jafnt og  reyndi að hafa bil i stelpuna sem að var fyrir aftan en þegar að við byrjuðum að hringa þá náði hún mér aðeins því að ég gat ekki stokkið suma palla þegar ég var að hringa hægari keppendur en ég endaði qualifying motoið í 5 sæti.

Á sunnudagsæfingunni þá tók ég því nokkuð rólega og reyndi að æfa bara ákveðna kafla og það gekk mjög vel. Brautin var rosalega flott og mikið grip í henni. 1 moto. Ég var í kringum 8 sæti i startinu en vann mig uppí  í 5 sæti strax niður droppið. Ég var á undan stelpunni sem ég var í baráttu við um 5 sætið í meistaramótinu. Hún gerði mistök á öðrum hring sem gaf mér smá forskot. Undir lokinn á mótóinu þá var hún búinn að vinna það til baka en ég var á undan í mark. Við vorum þá jafnar í 5 sæti í meistaramótinu. 2 moto Ég var framarlega í startinu og tók aftur línuna meðfram vinstri kantinum að droppinu niður í gilið. Ég hjólaði mjög slaka hringtíma í byrjun en tók mig á síðustu hringina þegar ég fékk pressu frá Emmy. Við áttum mjög góða baráttu síðustu hringina. Hún fór frammúr mér en ég tók það strax aftur og svo skiptist þetta nokkrum sinnum en ég var sú sem að var á undan í mark en hún sleppti mér alveg síðasta hringinn.

Ég endaði bæði motoin í 5 sæti og var mjög ánægð með það. Linda varð reyndar í 3 sæti í seinna motoinu og vann hún mig því með 4 stigum í overall stigatöflunni en við áttum nokkur góð moto saman.

Ég er rosalega sátt með helgina en ég sýndi það að ég kan að keyra hjólið í harðri braut og erfiðum línum. Ég hef ekki beint sýnt það að ég sé hröð í hörðu brautunum en ég hef alltaf verið aðeins lengra á eftir þeim í hörðu. Ég var það hinsvegar ekki í þessari keppni og það er bara að æfa þetta en mig vantar aðeins örfáar sekúndur til að vera berjast í toppnum. Ég endaði semsagt meistaramótið í 6 sæti 4 stigum á eftir 5 sæti.

Bryndís

Kristín Björnsdóttir liked this post

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>