Akstursíþróttakona ársins 2011

Akstursíþróttakona ársins 2011

Laugardaginn 12 nóvember var uppskeruhátíð/ árshátíð MSÍ í Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni  og var hún frábær. Það voru veitt fjölmörg verðlaun, sýnd flott og skemmtileg vídeó frá sumrinu. Mér hlotnaðist sá heiður að vera valin akstursíþróttakona ársins þriðja árið í röð eftir að hafa tekið þátt í heimsmeistarakeppninni, sænska meistaramótinu og íslenska meistaramótinu.

Árið var þokkalega erfitt en það byrjaði á því að ég meiddist á mjöðm og missti af öllu undirbúningstímabilinu fyrir tímabilið, síðan í júní þegar ég var að verða góð af mjöðminni þá fór ég úr axlarlið en það hélt mér frá æfinum og keppni fram í lok júlí.

Keppnistímabilið byrjaði á heimsmeistarakeppnin í Búlgaríu í apríl en ég hafði nánast ekkert æft og var mjög stirð í akstri en það var þannig alveg fyrstu keppnirnar á tímabilinu. Ég datt út úr keppninni í tímatökunni eftir nokkra hringi vegna erfiðra aðstæðna sem að ég réði ekki við og endaði fyrir utan brautina. Ég tók þá ákvörðun að keppa ekki þá keppni en mér leið ekki vel eftir þetta. Ég mætti til leiks í fjórar heimsmeistarakeppnir en tók aðeins þátt í tveimur af þeim vegna meiðsla. Ég varð 13 í Grikklandi og 14 í Finnlandi og endaði heimsmeistarakeppnina í  23 sæti sem er bæting á mínum besta árangri.

Sænska meistaramótið byrjaði í maí og lauk í október en ég keppti í öllum sex umferðunum. Það voru nánast alltaf tvær umferðir helgi eftir helgi. Lélegustu úrslitin mín voru í fyrstu umferðinni  sem var 10. sæti en þá var ég ennþá frekar stíf og stirð. Þetta gekk betur og betur því að ég var komin í betra hjólaform en ég náði þó aldrei að auka hraðann það mikið í sumar vegna meiðsla. Ég var engu að síður með jöfn úrslit en mig vantaði að taka með mér meiri stig úr fyrstu keppninni til þess að ná að eiga möguleika á að halda mér við toppinn í loka umferðunum. Eins og ég sagði þá keppti ég í öllum keppnunum og endaði mótaröðina í 6 sæti aðeins 4 stigum á eftir 5 sæti en við vorum jafnar að stigum fyrir síðasta motoið.

Í íslenska meistaramótinu keppti ég í unglingaflokk. Ég keyrði fjórar af fimm umferðum. Þetta gekk ágætlega en það var hörð barátta í fyrstu keppninni. Ég missti af annari umferð vegna meiðsla og þurfti að horfa á hana og svo náði ég ágætum úrslitum það sem eftir var. Hjólið bilaði í seinna motoinu á Akureyri og endaði ég því einu sinni í 10 sæti. Ég endaði í 5 sæti samanlagt í íslands meistaramótinu og er sátt við það.

Yfir heildina þá hjólaði ég rosalega lítið þetta tímabil, lítið um æfingar svo þetta voru nánast bara keppnir. Ég bætti aðeins tæknina þegar fór að líða á og aksturinn var farin að líta meira sannfærandi út. Undurbúningur fyrir keppnistímabilið 2012 er hafinn en ég stefni á að styrkja mig á réttan hátt til þess að draga úr líkunum á meiðslum. Ég verð með síft hjólaplan á undirbúningstímabilinu til þess að mæta tilbúinn í byrjun tímabilsins. Stefnan er á Svíþjóð og Íslandi á næsta ári en það er ekki alveg á hreinu hvernig þetta fer með heimsmeistarakeppnina. Það er búið að vera mikð um breytingar hjá keppnishaldaranum og miðað við kostnaðinn þá er það trúlega ekki þessi virði að taka þátt.

Þar sem ég er að vinna í því að koma prógraminu mínu saman núna þá er ég að leita eftir styrktaraðilum og ef þú kæri lesandi hefur einhverjar upplýsingar sem gætu nýst mér þá máttu endilega senda mér póst.

Kveðja Bryndís

One Response to “Akstursíþróttakona ársins 2011”

  1. Mark says:

    Busy Girl! :-)

    Let’s see if we can’t get you into the top shape of your life ever, including better injury-proofing (and totally lean too of course! :-) ).

    Mark

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>