Á föstudaginn fórum ég og mamma á úthlutun úr Afreksmannasjóði Íþróttabandalags Hafnarfjarðar sem var haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu. Það var verið að veita styrk til þeirra afreksíþróttamanna sem að höfðu tekið þátt á stórmótum á árinu 2011. Það voru nokkrir íþróttamenn sem að fengu styrki þar á meðal ég en það er heill hellingur af afreksíþróttamönnum í Hafnarfirði.
Ég er búin að vera æfa undanfarið með Mark og hefur það bara gengið mjög vel en við höfum verið að gera einfaldar æfingar sem að hafa tekið mikið á.
Nýja hjólið mitt er komið en það er KTM 125SX 2T en ég prófaði það um helgina á ísnum og var það bara mjög skemmtilegt. Ég er ekki búin að hjóla á 2 stroke á ís síðan 2008 svo að þetta vara skemmtileg tilbreyting. Það er keppni um helgina og vona ég bara að mér eigi eftir að ganga vel.
Bryndís