Fréttir

Úthlutun úr Afreksmannasjóð Íþróttabandalags Hafnarfjarðar ÍBH

Posted by on jan 24, 2012 in News | 0 comments

Úthlutun úr Afreksmannasjóð Íþróttabandalags Hafnarfjarðar ÍBH

Á föstudaginn fórum ég og mamma á úthlutun úr Afreksmannasjóði Íþróttabandalags Hafnarfjarðar sem var haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu. Það var verið að veita styrk til þeirra afreksíþróttamanna sem að höfðu tekið þátt á stórmótum á árinu 2011. Það voru nokkrir íþróttamenn sem að fengu styrki þar á meðal ég en það er heill hellingur af afreksíþróttamönnum í Hafnarfirði.

Ég er búin að vera æfa undanfarið með Mark og hefur það bara gengið mjög vel en við höfum verið að gera einfaldar æfingar sem að hafa tekið mikið á.

Nýja hjólið mitt er komið en það er KTM 125SX 2T en ég prófaði það um helgina á ísnum og var það bara mjög skemmtilegt. Ég er ekki búin að hjóla á 2 stroke á ís síðan 2008 svo að þetta vara skemmtileg tilbreyting. Það er keppni um helgina og vona ég bara að mér eigi eftir að ganga vel.

Bryndís

Kristín Björnsdóttir liked this post

Íþrótta- og viðurkenninga hátíð ÍBH

Posted by on des 30, 2011 in News | 1 comment

Íþrótta- og viðurkenninga hátíð ÍBH

Í gærkvöld var haldin íþrótta- og viðurkenninga hátíð ÍBH. Ég fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í íþróttinni minni og tilnefnd til íþróttakonu Hafnarfjarðar. Þetta er í þriðja skiptið sem að ég fæ þessa viðurkenningu og hefur það alltaf verið jafn gaman.

Ég er byrjuð að undirbúa árið 2012 og er að vinna með nýjum þjálfara, Mark Kislich. Hann er að þjálfa KR og því býr hann á Íslandi sem er mjög þægilegt. Ég er strax búin að sjá árangur en við vinnum bæði með líkamsþjálfun og matarræði. Ég er ekkert smá sátt með hann og hann er duglegur við að hjálpa mér og leiðbeina. Hann er með heimasíðu http://www.tsmethod.com/. Það geta allir farið þarna inn og lesið. Hann gefur góð ráð sem að geta hjálpað mjög mikið.

Eftir 5 daga erum við pabbi að fara til Los Angeles og ætlum að horfa á Supercrossið í Anaheim 1 sem verður þvílíkt fjör og hlakkar mig ótrúlega mikið til.

Gleðilegt ár!
Bryndís

Akstursíþróttakona ársins 2011

Posted by on nóv 28, 2011 in News | 1 comment

Akstursíþróttakona ársins 2011

Laugardaginn 12 nóvember var uppskeruhátíð/ árshátíð MSÍ í Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni  og var hún frábær. Það voru veitt fjölmörg verðlaun, sýnd flott og skemmtileg vídeó frá sumrinu. Mér hlotnaðist sá heiður að vera valin akstursíþróttakona ársins þriðja árið í röð eftir að hafa tekið þátt í heimsmeistarakeppninni, sænska meistaramótinu og íslenska meistaramótinu.

Árið var þokkalega erfitt en það byrjaði á því að ég meiddist á mjöðm og missti af öllu undirbúningstímabilinu fyrir tímabilið, síðan í júní þegar ég var að verða góð af mjöðminni þá fór ég úr axlarlið en það hélt mér frá æfinum og keppni fram í lok júlí.

Keppnistímabilið byrjaði á heimsmeistarakeppnin í Búlgaríu í apríl en ég hafði nánast ekkert æft og var mjög stirð í akstri en það var þannig alveg fyrstu keppnirnar á tímabilinu. Ég datt út úr keppninni í tímatökunni eftir nokkra hringi vegna erfiðra aðstæðna sem að ég réði ekki við og endaði fyrir utan brautina. Ég tók þá ákvörðun að keppa ekki þá keppni en mér leið ekki vel eftir þetta. Ég mætti til leiks í fjórar heimsmeistarakeppnir en tók aðeins þátt í tveimur af þeim vegna meiðsla. Ég varð 13 í Grikklandi og 14 í Finnlandi og endaði heimsmeistarakeppnina í  23 sæti sem er bæting á mínum besta árangri.

Sænska meistaramótið byrjaði í maí og lauk í október en ég keppti í öllum sex umferðunum. Það voru nánast alltaf tvær umferðir helgi eftir helgi. Lélegustu úrslitin mín voru í fyrstu umferðinni  sem var 10. sæti en þá var ég ennþá frekar stíf og stirð. Þetta gekk betur og betur því að ég var komin í betra hjólaform en ég náði þó aldrei að auka hraðann það mikið í sumar vegna meiðsla. Ég var engu að síður með jöfn úrslit en mig vantaði að taka með mér meiri stig úr fyrstu keppninni til þess að ná að eiga möguleika á að halda mér við toppinn í loka umferðunum. Eins og ég sagði þá keppti ég í öllum keppnunum og endaði mótaröðina í 6 sæti aðeins 4 stigum á eftir 5 sæti en við vorum jafnar að stigum fyrir síðasta motoið.

Í íslenska meistaramótinu keppti ég í unglingaflokk. Ég keyrði fjórar af fimm umferðum. Þetta gekk ágætlega en það var hörð barátta í fyrstu keppninni. Ég missti af annari umferð vegna meiðsla og þurfti að horfa á hana og svo náði ég ágætum úrslitum það sem eftir var. Hjólið bilaði í seinna motoinu á Akureyri og endaði ég því einu sinni í 10 sæti. Ég endaði í 5 sæti samanlagt í íslands meistaramótinu og er sátt við það.

Yfir heildina þá hjólaði ég rosalega lítið þetta tímabil, lítið um æfingar svo þetta voru nánast bara keppnir. Ég bætti aðeins tæknina þegar fór að líða á og aksturinn var farin að líta meira sannfærandi út. Undurbúningur fyrir keppnistímabilið 2012 er hafinn en ég stefni á að styrkja mig á réttan hátt til þess að draga úr líkunum á meiðslum. Ég verð með síft hjólaplan á undirbúningstímabilinu til þess að mæta tilbúinn í byrjun tímabilsins. Stefnan er á Svíþjóð og Íslandi á næsta ári en það er ekki alveg á hreinu hvernig þetta fer með heimsmeistarakeppnina. Það er búið að vera mikð um breytingar hjá keppnishaldaranum og miðað við kostnaðinn þá er það trúlega ekki þessi virði að taka þátt.

Þar sem ég er að vinna í því að koma prógraminu mínu saman núna þá er ég að leita eftir styrktaraðilum og ef þú kæri lesandi hefur einhverjar upplýsingar sem gætu nýst mér þá máttu endilega senda mér póst.

Kveðja Bryndís

Loka umferð sænska meistaramótsins

Posted by on okt 17, 2011 in News | 0 comments

Loka umferð sænska meistaramótsins

Síðasta umferðin í Sænska meistaramótinu var haldin í Uddevalla, það er brautin sem að er notuð í heimsmeistarakeppninni sem er haldin í Svíþjóð. SVEMO hafði lagt saman USM (U = unglinga) og SM, USM byrjaði á föstudeginum en það voru bara A úrslit úr USM laugardag og sunnudag. B úrslit í USM voru keyrð á föstudeginum. Við komum á brautina um 2 leitið á föstudeginum en þá fór ég og horfði á USM strákana keyra. Brautin var sundurkeyrð en það hafði rignt svakalega alla vikuna þannig að það voru rosalega margar og djúpar línur. Við settum síðan upp pittinn okkar upp með pabba Alexöndru og gerðum allt tilbúið. Það var rosalega kalt og aðeins vindur en vindurinn hjálpaði aðeins til við að þurrka brautina. Ég hjólaði bara á miðvikudeginum fyrir keppnina því ég var ekkert sérstaklega góð í bakinu eftir keppnina í Tomelilla.

Æfingin og tímatakan á laugardeginum gekk ágætlega. Það tók smá stund að venjast brautinni og línunum í henni, því að maður missir aðeins flæðið í gegnum öldurnar en það eru 3 öldu kalfar í brautinni. Ég var með 2:13 á æfingunni og svo 2:08 í tímatökunni sem var 5 besti tíminn. Í qualifying raceinu átti ég mjög lélegt start en bjargaði því með því að taka innri línuna í fyrstu beygjunni og hélt vinstri kantinum alveg út beinakaflan og fram af droppinu niður í gilið og tók nokkur sæti á því.  Á fyrsta hringnum náði ég að keyra mig upp og var komin í 5 sæti þegar að ég fór yfir tímatökulínuna. Ég keyrði svo bara nokkuð jafnt og  reyndi að hafa bil i stelpuna sem að var fyrir aftan en þegar að við byrjuðum að hringa þá náði hún mér aðeins því að ég gat ekki stokkið suma palla þegar ég var að hringa hægari keppendur en ég endaði qualifying motoið í 5 sæti.

Á sunnudagsæfingunni þá tók ég því nokkuð rólega og reyndi að æfa bara ákveðna kafla og það gekk mjög vel. Brautin var rosalega flott og mikið grip í henni. 1 moto. Ég var í kringum 8 sæti i startinu en vann mig uppí  í 5 sæti strax niður droppið. Ég var á undan stelpunni sem ég var í baráttu við um 5 sætið í meistaramótinu. Hún gerði mistök á öðrum hring sem gaf mér smá forskot. Undir lokinn á mótóinu þá var hún búinn að vinna það til baka en ég var á undan í mark. Við vorum þá jafnar í 5 sæti í meistaramótinu. 2 moto Ég var framarlega í startinu og tók aftur línuna meðfram vinstri kantinum að droppinu niður í gilið. Ég hjólaði mjög slaka hringtíma í byrjun en tók mig á síðustu hringina þegar ég fékk pressu frá Emmy. Við áttum mjög góða baráttu síðustu hringina. Hún fór frammúr mér en ég tók það strax aftur og svo skiptist þetta nokkrum sinnum en ég var sú sem að var á undan í mark en hún sleppti mér alveg síðasta hringinn.

Ég endaði bæði motoin í 5 sæti og var mjög ánægð með það. Linda varð reyndar í 3 sæti í seinna motoinu og vann hún mig því með 4 stigum í overall stigatöflunni en við áttum nokkur góð moto saman.

Ég er rosalega sátt með helgina en ég sýndi það að ég kan að keyra hjólið í harðri braut og erfiðum línum. Ég hef ekki beint sýnt það að ég sé hröð í hörðu brautunum en ég hef alltaf verið aðeins lengra á eftir þeim í hörðu. Ég var það hinsvegar ekki í þessari keppni og það er bara að æfa þetta en mig vantar aðeins örfáar sekúndur til að vera berjast í toppnum. Ég endaði semsagt meistaramótið í 6 sæti 4 stigum á eftir 5 sæti.

Bryndís

Kristín Björnsdóttir liked this post

Fimmta umferð sænskameistaramótsins – Tomelilla

Posted by on okt 4, 2011 in News | 0 comments

Fimmta umferð sænskameistaramótsins – Tomelilla

Ég flaug til Kaupmannahafnar á föstudagsmorguninn og tók lestina yfir til Malmö þar sem að pabbi kom og sótti mig. Við vorum komin á brautina seinni partinn en veðrið var rosalega gott. Við vorum í A-pittinum  með Alexöndru og pabba hennar. Eftir skoðun þá labbaði ég brautina og hún leit vel út. Það er mikið af stórum pöllum í henni, langir beinir kaflar og brattar brekkur.

Á laugardeginum byrjuðum við á startæfingu sem var ágæt, hjólið var mjög gott, betra en það hafði verið í síðustu keppni. Magnus Motor Works skipti um stimpil og yfirfór mótorinn eftir síðustu keppni. Strax eftir startæfinguna byrjar æfingin og á fyrsta hring þá krassar ein á sérstökum palli sem er algjörlega blindur, það sem maður sér er bara hátt uppstökk. Annars er hægt að lýsa pallinum eins og stuttum table topp með lendingu í 40 – 50 metra droppi. Uppstökkið er frekar bratt svo maður fer rosalega hátt upp. Við keyrðum nokkra hringi í viðbót og það var engin stelpa búin að reyna stökkva hann en maður fékk óþægilegt kick á pallinum. Þá krassaði önnur stelpa þarna og það þurfti að sækja hana á sjúkrabörum og þá var æfingin okkar rauðflögguð. Við biðum í nokkuð langa stund eftir að geta farið aftur af stað en þeir þurftu að laga uppstökkið á pallinum og nokkra aðra staði. Þegar að við byrjuðum aftur fóru nokkrar stelpur að reyna stökkva pallinn og heppnaðist það mismunandi en það var engin sem að krassaði þarna. Í tímatökunni var ég búin að vera með 5 tímann í smá stund og var það mjög svipaður tími og stelpan á eftir mér. Hún náði svo að bæta sig þannig að ég fór út og stökk droppið en gaf aðeins of mikið í og stökk rosalega langt niður í brekkuna og segja sumir að ég hafi unnið keppnina hver stökk lengst þann  daginn. Ég bætti mig um tæpar 2 sek með því að stökkva þetta og var ég mjög sátt með það.  Í kvalheatinu var ég með lélegt start en keyrði mig upp strax á fyrsta hring og var miklu ákveðnari en þær  sem að ég var að fara frammúr. Á þriðja hring ákvað ég svo að stökkva droppið aftur og þá fór ég að auka forskotið á þær sem voru á eftir mér og minka bilið í þær á undan. Ég var í 5 sæti en þá datt stelpan í 3 sæti í sandbeygjunni sem var rosalega sleip og erfið því maður kom úr langum beinum hörðum kafla fram hjá pittinum og beint inn í sandinn. Þá ég komin í 4 sæti og hélt áfram að taka á stelpuna á undan. Hún var aðeins of langt á undan mér meða við tímann sem var eftir til þess að ná henni þannig að ég endað í 4 sæti.

Sunnudagurinn var rosalegur en það var svo mikil þoka að það þyrfti að fresta keppninni um 2 tíma. Það er rosalega erfitt fyrir flaggarana að sjá ef að það var einhver sem að datt eða ef að það þarf sjúkrahjálp þá sjá þeir ekki sjúkraflaggið. Við fengum 15 mínútur í upphitum og var búið að slétta nánast alla brautina nema einhverjar 3 beygjur.  Þetta var gaman og náði ég að hjóla aðeins betur en á laugardeginum.

1 moto: Ég náði ágætu starti og var í kringum 6 sæti og var í baráttu fyrsta hringina og fór frammúr tveimur stelpum strax á fyrsta hring og var komin upp í 4 sæti og var á eftir stelpunni í 3 sæti. Var að ná henni og fór frammúr henni í þriðju tilraun og var þá komin í 3 sæti og hélt því í um 2 hringi. Þá rann ég á hliðina í einni beygjunni en þegar ég var að standa upp þá keyrði fjórða sætið í bakið á mér svo ég kýldist niður aftur. Ég stóð upp og hélt áfram en mér var mjög illt í bakinu og reyndi eins og ég gat. Ég náði einni stelpu strax og var í innri línunni en hún skar yfir og klippti framdekkið hjá mér svo ég fór á hausinn. Ég stökk upp eins hratt og ég gat og kláraði motoið í 8. sæti en bakið var að fara með mig og ég gat hvorki setið né staðið síðustu hringina.

2 moto: Ég var með mjög mikla verki í bakinu en reyndi að hugsa ekki um það. Eftir að ég rúllaði skoðunarhringinn  þá sá ég hvað brautin var holótt og ónýt og svo þetta leit ekki vel út fyrir motoið. Ég var með mjög gott start, var í 4 sæti og missti það aðeins seinna niður í 5 og svo 6 sæti en ég hélt áfram að reyna halda í þær fyrsta hringina því að ég vissi að ef að ég myndi gera það ætti ég séns á að engin önnur færi frammúr mér. Ég endaði motoið í 6 sæti og hjólaði ég mun betur í seinna motoinu í heildina en hvað ég gerði í fyrra motoinu. Ég endaði keppnina í 6 sæti samanlagt og var það nokkuð gott miðað við aðstæður en ég veit að ég var miklu betri en það. Hákon motocross.is var á keppninni  og fylgdist með mér og gaf mér góð ráð.

Í gær hitti ég naprapat og fékk ráðleggingu um að taka því rólega en í dag reyni ég að fara hlaupa aðeins á ströndinni og svo bara svo taka því rólega. Næsta umferð er síðasta umferðin í sænskameistaramótinu en hún verður í Uddevalla um næstu helgi.

Bryndís

Myndir frá Hákoni hér motocross.is