Fréttir

Enduro CC

Posted by on sep 29, 2011 in News | 2 comments

Enduro CC

Ég keppti á Sauðárkrók í byrjun september en það voru tvær síðustu umferðir íslandsmótsins í Enduro CC. Þetta er í fyrsta skipti sem ég keppi í enduro fyrir utan Jónsmessukeppnina í Bolaöldu 2008. Þetta var skemmtileg keppni og einhverjir sögðu að þetta hefði verið erfiðasta keppnin á árinu. Ég vann fyrri umferðina en einhvertíman á þessum þremur hringjum sem ég fór þá krassaði ég feitt og datt út. Þegar ég kláraði þá hafði ég ekki hugmynd um það hvar ég var svo ég ákvað að fara ekki í seinni umferðina.

Síðustu vikur hafa farið í alskonar æfingar en ég er farin að prófa aðeins að æfa crossfit hjá Árna og Kela og er það mjög gaman. Ég er búin að vera hjóla aðeins því það eru ennþá tvær umferðir eftir af sænska meistaramótinu. Ég er í 5. sæti eftir 4 umferðir og ætla ég mér að halda því, ég er í mjög þéttum hóp af stelpum og munar ekki mikið af stigum á milli okkar. Mér finnst 5. sæti vera mjög góður árangur en árið 2009 þegar að ég keppti í Svíþjóð endaði ég meistaramótið í 9. sæti samanlagt. Ég er búin að vera hjóla í Motomos, Sólbrekku en mest í Bolaöldu. Þær hafa verið í mjög fínu standi og alltaf hægt að æfa eitthvað mismunandi.

Brautirnar sem að eru eftir í Svíþjóð eru mjög skemmtilegar, mikið af brekkum og pöllum og verður bara gaman að sjá hvernig gengur í þeim. Þær eru ekki líkar neinni braut hérna heima á Íslandi.
Ég flýg út á föstudagsmorguninn en fyrsta keppnin er núna um helgina í Tomelilla við pabbi verðum svo áfram í Svíþjóð til að æfa fyrir síðustu umferðina sem er haldin í Uddevalla. Það verður stór keppnishelgi í Uddevalla því þá verður líka síðasta umferðin í USM sem er unglingameistaramótið í Svíþjóð.

Bryndís

Fjórða umferð sænskameistaramótsins – Västerås

Posted by on sep 2, 2011 in News | 0 comments

Fjórða umferð sænskameistaramótsins – Västerås

Við mamma flugum til Stokkhólms á föstudeginum fyrir keppnina og pabbi kom frá Þýskalandi en hann var að vinna þar. Brautin í Västerås er aðeins um klukkutíma frá flugvellinum í Stokkhólmi. Við vorum í A-pittnum með Alexöndru Olafsson en sá sem hefur verið með  henni er meiddur. Brautin leit mjög vel út, þeir höfðu sett meira efni í hana frá því að við pabbi skoðuðum hana og lagað allt mjög vel. Það eru allskonar mismunandi stökkpallar og beygjur. Það eru engir battar í beygjunum, brautin er frekar hörð svo það er mjög erfitt að fá línur í beygjunum. Það var svakalegur rythmakafli hjá endamarkinu, það voru 4 litlir doublar í hallandi beygju niður á við og svo beint eftir það komu 2 stórir doublar og svo á endann var tabletopp.

Á laugardagsmorguninn var æfing og tímatakan keyrð saman eins og vanalega en hún gekk mjög vel. Ég fór nokkra hringi og fannst það ganga ágætlega og ég var að hjóla á 2:03, ég stökk alla palla í brautinni nema miðju doublinn. Þegar tímatakan var byrjuð vissi ég það ekki fyrst, ég fór út í brautina úr pittnum og stökk endastökksdouble:inn, tók einn hring og kom svo aftur inn í pittinn. Pabbi hélt að ég hefði ekki náð hröðum hring en ég athugaði tímann og sá að ég hafði náð að bæta mig um 1 sekúndu og var í 5. sæti. Ég ákvað að fara ekkert fleiri hringi og horfði bara á stelpurnar keyra. Ein stelpa sem að stökk alla palla í brautinni og var búin að vera 0.3 sek á eftir mér alla tímatökuna náði á síðasta hring að bæta sig um nokkra hundraðs hluta og var 0.6 sek á undan mér þó að hún stökkva alla pallana á brautinni, ég vildi frekar vera safe than sorry.

Í qualifying motoinu þá var ég 6 að velja hlið en startkaflinn er rosalega langur og skemmtilegur. Ég valdi mér hlið en holeshotið poppaði upp þegar að ég var á leiðinni út að hliðinu því að við þurfum að keyra langa leið þangað. Ég prjónaði aðeins of mikið þegar að hliðið féll og missti þá úr fyrsta hlutanum en ég tók innri línuna í fyrstu beygju þegar að allar keyrðu út í ytri og fór innstu línuna alla langa kaflann og var komin í 7 sæti þá og eftir nokkra metra í viðbót var ég komin í 6 sæti. Á fyrsta hring barðist ég við eina stelpu sem að ég átti ekki að vera berjast við þannig að ég ákvað að þetta gengi ekki lengur og gaf aðeins meira í. Ég hjólaði svo bara jafnt út motoið og bætti aðeins í restina og tók inn á stelpuna á undan. Á síðasta hring datt stelpan í 4 sæti þannig að ég endaði það moto í 5. sæti. Brautin var mjög spes enda voru þeir búnir að vökva hana meira á sumum stöðum en öðrum og þá vissi maður ekki alveg hvar og hvenær var sleipt eða hvenær var grip.

Aðfaranótt sunnudagsins voru þrumur og eldingar og helli demba þannig að brautin var vel blaut og sleip um morguninn. Á morgunæfingunni var bara gaman og létt að keyra því að þá var hún eins á öllum stöðunum í staðin fyrir að vera bara sleip á sumum stöðum. Ég fór nokkra hringi rólega og svo þegar að ég ætlaði að fara út að prófa fara hraðar dó hjólið oft og kom það síðar í ljós að kertahettan var ónýt. Það stytti upp eftir því sem leið meira á daginn og ég vissi að brautin yrði klístruð og sleip. Ég sleppti því að fara skoðunar hringinn fyrir fyrsta motoið, sá engan tilgang í því. Brautin hafði ekkert breyst svo mikið frá æfingunni ef eitthvað var voru bara pínu meiri línur sem var bara betra. Ég fór nákvæmlega eins að í startinu og ég gerði á laugardeginum nema að ég var aðeins framar í hópnum núna en ég tók samt innri línuna og var að berjast um 4-6 sæti á fyrstu hringjunum. Ég náði að halda aðeins í 4. sæti en við vorum farnar að hringa frekar fljótt og síðustu stelpurnar réðu engan veginn við brautina og gerði það mjög erfitt að fara framúr. Því lengra sem leið á motoið var erfiðara að fara framúr því þær voru engan veginn að virða það að það væri verið að hringa þær. Ég held að við sem vorum hraðri höfum verið hræddari við þær en þær við okkur því að þær voru út um allt í brautinni. Margar af stelpunum festust á leið upp eina brekkuna og voru að spóla þar. Það hægðist svakalega á mér þá hringi sem að ég komst ekki strax framúr og þá sérstaklega á síðasta hring. Stelpan sem ég var að hringa þá leit aftur fyrir sig og sá að ég var að koma en færði sig ekki. Hún gaf ekki eftir og keyrði utan í mig og ég var föst á eftir henni frekar lengi en þetta er stelpa sem að á að vita hvernig á að haga sér þegar verið er að hringa. Ég endaði motoið í 5. sæti en var mjög ósátt við stelpuna sem færði sig ekki á síðasta hring þar sem þetta hefði getað haft áhrif ef að það hefði verið minna bil milli mín og 6. sætis.

Ég fór upp í bíl og skipti um föt, hljóp svo út í braut til að sjá startið hjá strákunum í MX2. Í þessum flokki eru margir hraðir ökumenn og margir sem geta verið að berjast um pallinn og er því mjög mikilvægt að ná góðu starti. Þegar hópurinn kemur úr startbeygjunni þá verður hræðilegt óhapp sem endar með því að Johann Remmelg lést. Hann var á sextánda ári og ný byrjaður í Motocross mentaskólanum. Það er virkilega erfitt að jafna sig á þessu, ég var í góðum gír eftir 5. sætið í mótóinu og virkilega tilbúinn í seinna mótóið en síðan örfáum mínútum seinna gerist þetta ömurlega atvik.

Ég votta fjölskyldu og aðstandendum Johann samúð mína.

Bryndís

5. umferð íslandsmeistaramótið – Bolaalda

Posted by on ágú 24, 2011 in News | 1 comment

5. umferð íslandsmeistaramótið – Bolaalda

Um síðustu helgi fór fram síðasta umferð íslandsmeistaramótsins og var keppnin haldin í Bolaöldu. Bolaalda leit mjög vel út á föstudeignum fyrir keppnina en það var búið að rippa hana og bleyta helling. Ég var skráð í bæði kvennaflokk og unglingaflokk því að ég var komin í ágætt hjólaform og var tilbúin í þetta. Á laugardagsmorgninum byrjaði ég á tímatöku með stelpunum hjólaði 4 hringi til að setja einn tíma og hætti svo því að maður þarf bara að keyra 3 hringi í tímatökunni. Ég var með hraðasta hringtímann í kvennaflokknum á 2:04. Ég hafði síðan tímatökuna hjá 85 flokknum í pásu og svo var tímatakan hjá unglingaflokknum á eftir henni, ég beið aðeins með að fara inn í brautina og tók aftur bara 4 hringi. Ég var með 4 tímann þar í tímatökunni sem var mjög gott þar sem að ég fór bara 1 alvöru hring.

Í fyrra motoinu með kvennaflokknum var ég önnur í startinu en fór strax framúr Karen og hjólaði bara ákveðið og vann það örugglega. Fyrsta moto með unglingunum var ég 5 í startinu og var á eftir Jökli fyrstu hringina en ég komst ekki framúr og reyndi og reyndi því að ég var með hraðari hringtíma. Svo gerði hann aðeins mistök þannig að ég komst auðveldlega framúr og jók bilið á milli okkar, ég var rosalega stressuð og hamaðist á kúplingunni. Ég endaði motoið í 4 sæti og var með jafna hring tíma og varð ekkert rosalega þreytt enda búin að vera æfa þolið núna undanfarið. Fékk síðan pásu meðan MX Open og B-flokkurinn keyrðu. Rétt fyrir kvennamotoið fékk ég svakalegan maga krampa svo að ég gat ekki staðið, keyrði motoið, drap á hjólinu 1 sinni en ég tapaði ekkert á því var fyrst allan tímann og ég hélt það út motoið. Ég vann semsagt kvennaflokkinn og var sátt með það. Ég hjólaði ekki alveg eins og ég get en ég náði þó að halda tímunum nokkurveginn stöðugum.

Seinna moto:ið í unglingaflokk var mjög gott en ég lenti í krassi í startinu og ég var lang síðust af stað með einni annarri súkku en hann hélt að við værum að fara að race-a og var fyrir mér fyrstu beygjurnar langaði mest að keyra á hann svo að hann myndi átta sig á því að ég væri hraðari en hann. Ég fór framúr honum og svo tók smá tíma að komast í tempó en ég náði flestum en sumir voru mjög tregir þegar að ég ætlaði að fara framúr þeim og voru bara fyrir en þeir mega það þar sem ég var ekki að hringa þá. Ég náði að keyra mig upp í 6 sæti og farin að nálgast baráttuna um 4 og 5 sæti þá gáfu þeir aðeins meira í en ég endaði motoið í 6 sæti stutt á eftir 5 sæti.

Ég varð 5 sæti overall eftir daginn og varð líka 5 sæti overall í íslandsmeistaramótinu í unglingaflokk og missti af einni keppni. Það var mjög gaman að taka þátt í báðum flokkunum og geri ég það örugglega aftur.

Bryndís

Þriðja umferð sænska meistaramótsins – Finspång

Posted by on ágú 18, 2011 in News | 1 comment

Þriðja umferð sænska meistaramótsins – Finspång

Um síðustu helgi var keyrð þriðja umferðina af sænska meistaramótinu í braut sem heitir Eliantorpsbanan sem er nálægt Finspång sem er um 200 km frá Stokkhólmi. Vikuna fyrir keppnina gistum við pabbi  á flottu gistiheimili sem er í litlum bæ í suður Svíþjóð sem heitir Klåveröd. Gistiheimilið  er nýtt og hafði verið opnað fyrr á þessu ári,  manni leið nánast eins og heima hjá sér. Umhverfið er mjög fallegt og allt þar í kring og ég get vel mælt með að gista þarna.

Finspång er sandbraut sem er aðeins hörð undir og því myndast aðeins harðari bremsuholur en í venjulegri sandbraut og aðeins fleiri kantar. Brautin leit mjög vel út á föstudeginum slétt og hröð. Ég labbaði tvo hringi í brautinni og var mig farið að hlakka til að keyra í henni.

Á laugardagsmorgninum byrjaði æfingin á start æfingu sem gekk mjög vel og prufaði ég allskonar mismunandi línur, á æfingunni var brautin  æði. Það voru hinsvegar engar línur þannig að brautin var frekar hröð og skemmtileg. Ég var í 3. sæti á æfingunni og í 4. sæti í tímatökunni aðeins nokkrum hundraðshlutum á eftir 3. sæti. Brautin var ennþá ótrúlega slétt þannig að það skildi ekki mikið á milli okkar. Í Qualifyingheatinu var ég með ömurlegt start, var í kringum 10. sæti, en náði að keyra mig upp um 3 sæti á fyrsta hring. Ég kláraði í 3. sæti en þar sem ég þurfti að vinna mig upp úr 10. sætinu var mikið um framúrakstur og stelpurnar í 1. og 2. sæti náðu þá góðu forskoti. Náði drauma framúrakstrinum, það kom step-up með lendingu og Marie fór ekki alla leiðina yfir þannig að ég stökk alla leið og keyrði mig bara inn í innri línuna og átti hana. Við keyrðum aðeins saman en ég átti innri línuna og ég get bókað að fólk sér þetta ekki í kvennaflokknum við framúrakstur. Hún datt ekki og sýndi það hversu vel þessi framúrakstur tókst og þetta var ekki blockpass. Ég var sátt með 3. sætið og var ekki mjög þreytt enda var brautin ennþá frekar slétt.

Á sunnudeginum byrjuðum við á æfingu og ég fór nokkra hringi og var með annan besta tímann sem hefði í raun átt að vera betri en ég gat ekki stokkið einn pall vegna þess að gula flaggið var á lofti. Var ánægð með það og var vel stemmd fyrir fyrsta motoið. Í startinu á 1. motoi var ég ekkert svo framarlega en náði að vinna mig upp strax á öðrum hring í 4. sæti.  Ég var alveg í afturdekkinu á 3. sæti, tilbúin til að fara framúr og var búin að ákveða stað en þegar að við komum yfir einn hólinn inn í beygju var gult flagg. Stelpan í 2. sæti hafði dottið þannig að við fórum báðar í innri línuna framhjá henni. En þegar að stelpan á undan mér er komin framhjá henni þá sleppir þessi sem datt kúplingunni og gefur allt í botn og keyrir á mig, við festumst saman með hjólin og ég datt niður í 6. sæti við það en náði að keyra mig upp og enda í 4. sæti aðeins 2 sek á eftir 3. sæti. Ég var rosalega pirruð eftir motoið enda var ég ekki sátt með að vera keyrð niður.

Moto 2, ég þurfti bara að vera á undan stelpunni sem að var í 3. sæti í fyrsta motoi og til þess að ná pallinum. Ég náði góðu starti og var 4. á eftir Mariu sem var 5. í fyrra motoinu, ég var hraðari en hún og þegar að ég var búin að ákveða stað til að fara framúr en þá drap ég á hjólinu. Ég datt niður í 10.-11. sæti og missti þær 25 sek á undan mér þannig að ég þurfti að keyra mig upp. Það gekk mjög vel, ég var mjög afslöppuð og náði framúr flestum en stelpurnar sem að ég var að hringa voru svolítið mikið fyrir þannig að ég tapaði nokkrum sek og kláraði í 6. sæti. Ég var samanlagt í 5. sæti eftir helgina og var sæmilega sátt með það en ég hafði hraðann til þess að vera í 3. sæti en ég verð bara að ná því seinna.

Núna framundan er síðasta keppnin í íslenska meistaramótinu í Bolaöldu laugardaginn 20. ágúst.

Bryndís

Kristín Björnsdóttir liked this post

Fjórða umferð íslandsmótsins – Akureyri

Posted by on ágú 4, 2011 in News | 0 comments

Fjórða umferð íslandsmótsins – Akureyri

Ég fór norður á þriðjudeginum fyrir keppnina með Bigga og Ingva Birni til að æfa, þegar að við komum norður var brautin rosalega þurr og mikið af ryki í henni. Ég fann líka aðeins fyrir öxlunum á mér en þær urðu fljótt þreyttar, þetta er bara hjólaleysi og þarf ég að vinna í því að hjóla meira. Það rigndi svo alla aðfaranótt miðvikudagsins en það gerði ekki neitt fyrir brautina. Um morguninn var brautin vökvuð en þeir bleyttu hana rosalega mikið svo hún varð mjög sleip því vatnið sat ofan á þannig við biðum aðeins með það að hjóla í henni. Brautin var svo í superstandi á fimmtudeginum og hjólaði ég helling á 250 2T sem var geðveikt (Takk fyrir lánið Björk og Sverrir!).

Á laugardeginum var brautin fín en þeir settu svolítið mikið af trjákurli í hana sem var rosalega stórt þannig það var vont að hjóla á eftir einhverjum. Ég var með 6 tímann í tímatökunni en það skiptir litlu máli hvar þú stendur á línunni á Akureyri. Í fyrsta motoinu var ég með ágætt start um 5-7 sæti og var að berjast fyrstu hringina en ég vann þá baráttu og var á undan. Ég hjólið jafnt út motoið og var með stöðuga hringtíma. Ég fann ekkert til í öxlunum sem var frábært. Brautin var góð en það eru bara allar beygjurnar eins í henni, allar 180°. Í seinna motoinu var ég með miklu betra start, var 4 en hjólið virtist svo þungt í beygjunum en ég hélt áfram og var að byrja draga í burtu frá hópnum sem var á eftir mér þegar hjólið byrjaði að vera ótrúlega skrýtið í beygjunum það kokaði þegar að ég reyndi að gefa í. Ég reyndi að keyra eins hratt og ég gat til enda en ég var farin að þurfa skipta alveg niður í fyrsta gír svo að ég kæmist brautina. Missti nánast alla framúr mér enda var ég bara að dóla í kantinum. Ég endaði það moto í 10 sæti og setti það mig í 8 sæti eftir daginn.

Við vissum ekki alveg fyrst hvað hefði komið fyrir en svo þegar að pabbi fór að skoða þetta betur þá hafði nýja sían fyrir spíssinn stíflast og hjólið fékk því ekki allt eldsneytið sem að það átti að fá. Pabbi gat lagað það sem betur fer vegna þess að ég var að fara keppa á unglinga landsmótinu á Egilstöðum daginn eftir.

- Bryndís